Farsæld barna
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi þann 1. janúar 2022. Meginmarkmið laganna er að skapa umgjörð sem stuðlar að því að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana.
Í lögunum kemur fram að börn undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra skuli hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er:
- • að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
- • að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
- • að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
- • að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns – eyðublað frá BOFS
- • að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
- • að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
- • að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á
Þegar barn er við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.
Úrræðalisti Áslandsskóla er hér
Tengiliður/ir farsældar í Áslandsskóla eru:
Jóhanna Björg Másdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu
Hjördís Jónsdóttir, deildarstjóri 1.-4.bekk
Sigrún Guðmundsdóttir, deildarstjóri 5.-7.bekk
Kristín Jóna Magnúsdóttir, deildarstjóri 8.-10.bekk
Áður en tengiliður byrjar að veita þjónustu skal liggja fyrir beiðni foreldra og/eða barns um samþættingu þjónustu. Hér fyrir neðan er tengill á þessi eyðublöð.
· Beiðni um samþætta þjónustu Hér
· Beiðni um miðlun upplýsingar Hér
Hér eru nokkrir gagnlegir tenglar:
· Kynningarmyndband: Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna
· Leiðbeiningar um innleiðingu á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna (Barna- og fjölskyldustofa)
https://www.bofs.is/farsaeld/leidbeiningar-um-innleidingu-til-sveitarfelaga/
· Samþætting þjónustu í þágu farsældar barna (Barna- og fjölskyldustofa)
https://www.bofs.is/media/almenningur/Glaerur-a-heimasidu-2023.pdf
· Reglugerð um tengiliði og málstjóra samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna
https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=864aa86c-d80d-4865-b09b-a5875ddeeb85
- Eldri færsla
- Nýrri færsla